Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007
1.8.2007 | 21:16
Í faðmi fjölskyldna á ný!
Já! Eins og alþjóð veit yfirgáfum við meginlandið laugardaginn var og sáum ekkert annað í stöðunni en að taka púlsinn á 101. Svo miklir heimsborgarar erum við orðnir að þegar við sáum djammið niðrí bæ litum við á hvorn annan og sögðum: "Fussumsvei! Þetta eru villimenn!" Neinei, við þurfum bara smá aðlögunartíma, við erum allir villimenn inn við beinið.
Við erum hvergi nær hættir að djamma, því Gunni og Geir Atli eru að fara á Þjóðhátíð í eyjum með frekar stórum hóp, en ég(Jón:)) hef ákveðið að skella mér í tveggja vikna menningarferð til Tenerife með verðandi útskriftarárgangi MR.
Ferðin okkar var fullkomin í alla staði og við komum heldur betur reynslunni ríkari til baka.
Júlí 2007 er mánuður sem við gleymum aldrei. Við kunnum að meta kommentin og þann hlýja hug sem þið báruð til okkar. Takk fyrir okkur.
Chao!
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Eldri færslur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.5.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 512
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
